Verkstofa
Fyrir verktaka, iðnaðarmenn og þjónustufyrirtæki

Einfaldasta og sjálfvirkasta bókhaldskerfið fyrir íslensk fyrirtæki.

Kerfið les reikningana, bókar bankann, reiknar VSK og býr til launin úr tímum sem verkstjórinn hefur samþykkt. Þú yfirferð og samþykkir – það sem fer út úr húsi fer aldrei af stað án þín.

Ekkert greiðslukort · engin binding · reikningur gefinn út og sendur í 4 smellum

Yfirlit stjórnborðsins með sýnigögnum: verk með óútskuldaða vinnu, vörur undir lágmarki og lykiltölur sölu og krafna.

Hvað gerir kerfið sjálft

Handavinnan sem tekur tímann í öðrum kerfum gerist hér af sjálfu sér. Þú sérð niðurstöðuna og grípur aðeins inn þar sem þarf.

Reikningar birgja lesnir

Reikningar í tengdu bókhaldspósthólfi (PDF, mynd eða XML) eru lesnir sjálfkrafa: birgir, upphæð, gjalddagi og VSK. Mögulegar tvítekningar eru flaggaðar.

Bankinn bókaður

Bankafærslur eru sóttar og bókaðar eftir reglum sem kerfið lærir af því sem þú hefur gert áður. Það sem passar ekki fer í „Þarf athygli“.

VSK reiknaður

VSK-skýrslan reiknast beint úr bókhaldinu. Kerfið segir þér hvaða nótur vantar fyrir tímabilið áður en þú skilar.

Laun úr samþykktum tímum

Þegar tímabili lýkur og verkstjóri hefur samþykkt tímana verða launin til sem drög – yfirvinna, orlof, lífeyrir og staðgreiðsla reiknuð. Þú samþykkir með einum smelli.

Kreditkortanótur

Hver kortafærsla er pöruð við nótuna. Vanti nótu fær korthafinn áminningu í símann og tekur mynd. Týnd nóta? Kerfið útbýr beiðni um afrit til seljandans.

Reikningar paraðir við verk

Efniskaup lenda á réttu verki eftir tilvísun á reikningnum og stimplunum dagsins. Leiðréttir þú einu sinni lærir kerfið regluna.

Allt fyrirtækið í einu kerfi

Skjámyndirnar eru úr kerfinu sjálfu, með tilbúnum sýnigögnum.

Bókhald

Bókhald sem færir sig sjálft

Sölureikningar, innkaup, laun og greiðslur bókast um leið og þau verða til. Leiðrétting er alltaf bakfærsla, svo sagan stendur óbreytt.

  • Rekstrar- og efnahagsreikningur, deildir og verk
  • VSK-uppgjör per tímabil og skattframtalslyklar (RSK 1.04)
  • Gagnadagbók: hver breytti hverju og hvenær
  • Endurskoðandi fær lesaðgang með tveggja þátta auðkenningu
Bókhaldsskjár með tekjum, gjöldum og afkomu tímabilsins, VSK-uppgjöri og stöðu lykla.
Banki

Banki og greiðslur – alltaf með þínu samþykki

Færslur og kröfur eru sóttar og paraðar við bókhaldið. Greiðslur eru undirbúnar, en fara aldrei af stað nema þú samþykkir þær með rafrænum skilríkjum.

  • Landsbankinn: færslur, kröfur og greiðslur
  • Krafa stofnuð í banka úr útgefnum reikningi – kerfið veit ef hún er þegar til eða greidd
  • Kröfur birgja paraðar við reikninga: „Stemmir“ eða „Ekki greiða“
  • Arion banki og Íslandsbanki í vinnslu
Lánardrottnar: ógreiddir reikningar birgja með hnöppunum Samþykkja og Hafna.
Sala

Reikningur sendur í 4 smellum

Veldu viðskiptavin, veldu vöru og smelltu á „Gefa út“. Hvernig reikningurinn fer út – tölvupóstur með PDF, prentaður eða rafrænn – og hvort krafa fer í bankann er stillt einu sinni á viðskiptavininum.

  • Vöruleit eftir nafni, vörunúmeri eða strikamerki
  • Tímar og efni verks beint á reikninginn
  • Tilboð, áskriftir, framvindu- og kreditreikningar
  • Sending rafrænna reikninga um Peppol í vinnslu
Listi sölureikninga með stöðu, upphæð og sendingu.
Verk, tímar og klukka

Stimpilklukka í símanum

Starfsfólk stimplar sig inn á verk í símanum. Staðsetning er skráð við stimplun og verkstjóri samþykkir tíma og verklýsingar dagsins.

  • Íslenska, enska, rúmenska og litháíska
  • Framlegð hvers verks í rauntíma: tímar, efni og reikningar
  • Tímaskýrsla verks í PDF og Excel, send á verkkaupa sem staðfestir í gátt
  • Myndir og teikningar á verki, aðgangur fyrir eftirlitsaðila
Tímaskýrsla: stimplanir starfsfólks með inn, út, verki og tímum.
Laun

Laun sem reikna sig sjálf

Launin reiknast úr launareglu hvers starfsmanns og samþykktum tímum. Kerfið þekkir launatöflur kjarasamninga og stingur upp á hækkunum – þú samþykkir.

  • Launatöflur SGS, Eflingar, Samiðnar og RSÍ
  • Orlof, veikindaréttur og launasaga frá upphafi
  • Launaseðlar í PDF til starfsmanna og í klukkunni
  • Skil staðgreiðslu og skilagreina beint til RSK og sjóða í vinnslu
Launaskjár með launakeyrslum hvers tímabils og tillögu um launabreytingu eftir kjarasamningi.
Innkaup og kort

Hver kortafærsla eins og reikningur

Allir reikningar birgja og allar kortafærslur á einum stað. Kerfið finnur nótuna, bókar hana og lætur vita hvað vantar fyrir VSK.

  • Mynd af reikningi birtist þegar músin fer yfir línuna
  • Samþykktarferli: verkstjóri samþykkir reikninga síns verks (valkvætt)
  • Yfirferð sýnir aðeins það sem þarf að laga
  • Verðvakt: lætur vita þegar birgir hækkar verð
Reikningar og kort: kortafærslur með stöðunni vantar nótu og hnöppunum Bóka, Tengja og Nóta týnd.
Birgðir

Verðlisti birgja lesinn inn – engin handavinna

Hladdu inn verðlista frá birgja eða framleiðanda. Kerfið les dálkana, býr til vörunúmer og nöfn eftir þinni reglu og sýnir hvað breytist áður en nokkuð er vistað.

  • Excel, CSV, límt úr Excel eða PDF
  • Verðsaga og vörur sem birgir er hættur með merktar
  • Pöntunartillögur, talning og lágmark á lager
Birgðalisti: innlestur verðlista frá birgja með vörpun dálka og forskoðun.

Það sem aðeins við gerum

Samkvæmt samanburði okkar á opinberum upplýsingum íslensku kerfanna gerir ekkert annað þetta allt í einni áskrift.

Verkið er miðjanStimplun, samþykkt verkstjóra, reikningar birgja, framlegð og framvinda tengjast sama verkinu.
Bókunarreglur sem lærastBanki og birgjar bókast eftir því sem þú hefur gert – ekki eftir löngum handslegnum listum.
SjóðstreymisspáPeningastaðan fram í tímann, með launum og VSK.
„Vantar reikning“Kerfið finnur greiðslur og kortafærslur sem enginn reikningur fylgir.
Verkkaupi og eftirlit í gáttVerkkaupi staðfestir tíma og eftirlitsaðili sér myndir og teikningar verksins.
Veikindaréttur reiknaðurÁunnir og notaðir veikindadagar eftir kjarasamningi og starfsaldri.

Byggt á opinberum vöru- og hjálparsíðum Payday, Reglu, DK, Uniconta og Tímon, skoðuðum í október 2026.

Heiðarlegur samanburður

Það sem við höfum og það sem við höfum ekki enn. Merkt „í vinnslu“ þar sem við bíðum eftir aðgangi frá öðrum.

Samanburður á virkni Verkstofu, Reglu, DK og Payday
VirkniVerkstofaReglaDKPayday
Innreikningar lesnir með bókunartillögu✓✓✓✓
Bankafærslur bókaðar eftir lærðum reglum✓✓◐◐
Launakeyrsla og launaseðlar✓✓✓✓
Stimplun á verk með staðsetningu✓◐✓✗
Verkstjóri samþykkir tíma✓◐◐✗
Framlegð hvers verks í rauntíma✓◐✓✗
Samþykktarferli innreikninga✓✓◐✗
Sjóðstreymisspá✓✗◐✗
Veikindaréttur reiknaður✓✗✗✗
Verkkaupi staðfestir í gátt✓◐✗✗
Tenging við alla banka◐ Landsbankinn✓✓✓
Rafrænir reikningar út (Peppol)í vinnslu◐◐✓
VSK- og staðgreiðsluskil beint til RSKí vinnslu✓✓✓
Kassakerfi með posatengingu◐ posi í vinnslu✓✓✗
til staðar að hluta, aukagjald eða sér eining ekki til eða fannst ekki

Heimild: opinberar vöru- og hjálparsíður kerfanna, skoðaðar í október 2026. Aðeins atriði sem við gátum staðfest.

Öryggi

Bókhaldið þitt er viðkvæmt. Svona verjum við það – og sjálfvirk próf og afstemming keyra á hverri nóttu og láta vita ef eitthvað stemmir ekki.

Hýst í ESB

Gagnagrunnur og skrár eru í Frankfurt í Þýskalandi, með daglegum afritum.

Tveggja þátta auðkenning

Stjórnborðið krefst kóða úr auðkenningarappi auk lykilorðs. Innskráningar frá nýjum tækjum eru skráðar.

Dulkóðun

Öll samskipti eru dulkóðuð. Kennitölur og bankareikningar starfsmanna eru auk þess geymd dulkóðuð í grunninum.

Greiðslur aldrei sjálfkrafa

Engin greiðsla fer í bankann nema þú hafir samþykkt hana sjálf(ur) og staðfest með rafrænum skilríkjum.

Verð

Mánaðarlega, án bindingar, verð án VSK. Fyrstu 14 dagarnir eru ókeypis og þú gefur ekki upp greiðslukort.

Grunnur

12.900 kr.
á mánuði · 5 notendur innifaldir · 1.490 kr. á mánuði fyrir hvern viðbótarnotanda
  • Stimpilklukka og verk
  • Tilboð og sölureikningar
  • Bókhald, banki og VSK
Byrja ókeypis

Fagmaður

24.900 kr.
á mánuði · 10 notendur innifaldir · 990 kr. á mánuði fyrir hvern viðbótarnotanda
  • Allt í Grunni
  • Laun og launatímabil
  • Birgðir og innkaup
  • Verðreglur, áskriftir og áminningar
Byrja ókeypis

Verslun

34.900 kr.
á mánuði · ótakmarkaðir notendur
  • Allt í Fagmanni
  • Kassi, gjafabréf og Z-skýrslur
  • Posatenging í vinnslu
Byrja ókeypis

Algengar spurningar

Þarf ég að skipta um bókara eða endurskoðanda?

Nei. Bókarinn fær eigin aðgang og getur séð um mörg fyrirtæki á sama aðgangi. Endurskoðandi fær lesaðgang með gildistíma.

Get ég flutt gögnin mín úr öðru kerfi?

Já. Beint úr dk með dkPlus-tóka sem þú býrð til sjálf(ur), eða úr Excel- og CSV-skrám úr Reglu og fleiri kerfum. Þú sérð forskoðun áður en nokkuð fer inn.

Sendir kerfið eitthvað sjálft?

Aðeins það sem þú hefur stillt. Reikningur fer út þegar þú smellir á „Gefa út“, eftir sendingarmáta viðskiptavinarins. Áminningar verða drög sem þú sendir. Greiðslur fara aldrei sjálfkrafa.

Þarf starfsfólkið að læra eitthvað nýtt?

Klukkan er einföld: velja verk, stimpla inn, skrifa hvað var gert, stimpla út. Hana má setja á heimaskjá símans eins og app.

Hvar fæ ég hjálp?

Í leiðbeiningunum er eitt verk á hverri síðu, í stuttum skrefum með skjámynd. Hjálparinn neðst í horninu svarar spurningum um kerfið.

Hvað með gögnin mín ef ég hætti?

Þú átt þau. Þú færð gögnin afhent á stöðluðu sniði. Sjá nánar í skilmálum.

Prófaðu frítt í 14 daga

Stofnaðu fyrirtækið á nokkrum mínútum. Kerfið leiðir þig í gegnum fyrstu skrefin.

Viltu frekar að við setjum kerfið upp með þér?

Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að svara umsókninni. Sjá persónuverndarstefnu.