Verkstofa

Persónuverndarstefna

Hvernig Verkstofa vinnur persónuupplýsingar fyrir fyrirtæki og starfsfólk þeirra.

Drög 0.11 – lögfræðiyfirferð eftir. 22. október 2026. Textinn tekur ekki gildi fyrr en lögmaður hefur yfirfarið hann. Tengd skjöl: notendaskilmálar · persónuverndarstefna · vinnslusamningur · staða kerfisins.

1. Hlutverk

Viðskiptavinur (fyrirtækið) er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga um starfsfólk sitt, notendur, viðskiptavini og birgja sem skráðar eru í kerfið. Verkstofa, rekin af [Rekstraraðili – fyllist út], kt. [Rekstraraðili – fyllist út], er vinnsluaðili þeirra upplýsinga og vinnur þær aðeins samkvæmt fyrirmælum viðskiptavinar og vinnslusamningi. Starfsfólk Verkstofu skoðar ekki gögn viðskiptavinar nema hann biðji um aðstoð eða öryggi krefjist þess.

Verkstofa er sjálf ábyrgðaraðili upplýsinga um tengiliði sem sækja um aðgang á vefnum (nafn, netfang, sími, fyrirtæki, svör um núverandi kerfi), um áskrift og reikninga til viðskiptavina og samskipti við þá. Heimild til vinnslunnar er samningur eða undirbúningur samnings (b-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR) og lögmætir hagsmunir af öryggi kerfisins (f-liður). Umsóknum sem ekki leiða til viðskipta er eytt eftir 24 mánuði.

2. Hvaða upplýsingar eru unnar

Um hverjaUpplýsingarTilgangurVarðveisla
StarfsfólkNafn, kennitala, netfang, sími, bankareikningur, heimilisfang, tungumál, kjör og launaregla, lífeyrissjóður, séreign, stéttarfélag, tímafærslur, verklýsingar og þýðingar þeirra, staðsetning við stimplun, veikindaskráning, launaseðlar, myndir úr verkum, spjallskilaboðTímaskráning, verkstjórn, launavinnsla, lögbundin skilLauna- og bókhaldsgögn 7 ár; annað ákveður ábyrgðaraðili
NotendurNetfang, hlutverk, auðkennisapp (TOTP), innskráningarsaga (tími, forrit, tveggja þátta auðkenning, IP-tala með síðasta hluta földum, tegund tækis og vafra), gagnadagbók (hver breytti hverju)Aðgangur, öryggi, rekjanleikiInnskráningarsaga 400 dagar (eyðist sjálfkrafa); gagnadagbók með bókhaldsgögnum
Viðskiptavinir og birgjar fyrirtækisNafn, kennitala, heimilisfang, netfang, sími, reikningar, kröfur, greiðslur, bankafærslur, kortafærslurReikningagerð, innheimta, bókhald7 ár (bókhaldslög)
Skjöl og myndirReikningar og fylgiskjöl, nótur, teikningar og myndir úr verkum – geta innihaldið persónuupplýsingarBókhald, verkstjórnFylgiskjöl 7 ár; annað ákveður ábyrgðaraðili
Bókari og endurskoðandiNetfang, gildistími aðgangs, aðgerðirAðgangur að bókhaldiMeðan aðgangur gildir og með bókhaldsgögnum

3. Staðsetning við stimplun

Klukkan vistar staðsetningu símans aðeins á því augnabliki sem starfsmaður stimplar sig inn eða út, til að staðfesta viðveru á verkstað. Engin stöðug vöktun fer fram og staðsetning er ekki skráð þegar klukkan er lokuð. Ábyrgðaraðili ákveður varðveislutíma og upplýsir starfsfólk samkvæmt reglum Persónuverndar um rafræna vöktun; tillaga að texta er í leiðbeiningum.

4. Sjálfvirkur lestur, þýðingar og hjálpari

Reikningar og nótur sem berast eru lesin sjálfkrafa með gervigreindarþjónustu Google (Gemini API) til að finna birgi, upphæðir og línur. Verklýsingar eru þýddar með sömu þjónustu og frumtextinn helst óbreyttur. Hjálparinn svarar spurningum úr leiðbeiningunum; kennitölur eru ekki vistaðar í dagbók hjálparans. Gögn eru send í greidda þjónustu sem notar þau ekki til þjálfunar. Engar sjálfvirkar ákvarðanir með réttaráhrif á einstaklinga eru teknar – niðurstöður eru tillögur sem notandi yfirfer.

5. Kassi, viðskiptavinir og innheimta

Í kassa og sölukerfi eru skráðar upplýsingar um viðskiptavini fyrirtækisins að því marki sem þarf til að gefa út og innheimta reikning. Staðgreiðslusala í kassa er nafnlaus. Kortanúmer eru aldrei geymd í kerfinu; kortagreiðslur fara um posa færsluhirðis.

6. Hýsing og öryggi

7. Undirvinnsluaðilar

Listinn er í 5. gr. vinnslusamnings: aðilar sem alltaf eru notaðir (Supabase, Netlify, Google Gemini o.fl.) og aðilar sem aðeins eru notaðir ef viðskiptavinur tengir þjónustuna sjálfur (pósthólf, banki, Dokobit, posi o.fl.).

8. Réttindi einstaklinga

Einstaklingar eiga rétt á upplýsingum um vinnsluna, aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun, flutningi eigin gagna og að andmæla vinnslu samkvæmt lögum nr. 90/2018 og GDPR. Beiðnum um upplýsingar sem fyrirtæki skráði skal beina til fyrirtækisins (ábyrgðaraðila); Verkstofa aðstoðar það við að svara innan 30 daga. Bókhaldsgögnum verður þó ekki eytt fyrr en lögbundnum varðveislutíma lýkur. Einstaklingar geta kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

9. Öryggisbrestur

Verði öryggisbrestur sem varðar persónuupplýsingar tilkynnir Verkstofa viðkomandi viðskiptavinum án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en 48 klst. eftir að hans verður vart, með upplýsingum um eðli brests, áhrif og ráðstafanir, svo ábyrgðaraðili geti tilkynnt Persónuvernd innan 72 klst. (33. gr. GDPR). Varði bresturinn upplýsingar sem Verkstofa ber sjálf ábyrgð á tilkynnir hún Persónuvernd innan 72 klst. og hinum skráðu ef áhætta er mikil (34. gr.). Viðbrögð fylgja skjalfestu atvikaferli.

10. Við lok samnings

Gögn eru afhent ábyrgðaraðila innan 14 daga. Bókhaldsgögn eru síðan varðveitt læst og aðeins til lestrar svo lengi sem bókhaldslög krefjast; öðrum gögnum er eytt innan 90 daga.

11. Samskipti

Fyrirspurnir um persónuvernd: [Rekstraraðili – fyllist út], [Rekstraraðili – fyllist út].