Verkstofa

Vinnslusamningur

Milli fyrirtækis sem notar Verkstofu (ábyrgðaraðila) og rekstraraðila Verkstofu (vinnsluaðila).

Drög 0.11 – lögfræðiyfirferð eftir. 22. október 2026. Textinn tekur ekki gildi fyrr en lögmaður hefur yfirfarið hann. Tengd skjöl: notendaskilmálar · persónuverndarstefna · vinnslusamningur · staða kerfisins.

Samningur þessi er gerður samkvæmt 28. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679 (GDPR) og lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Hann er hluti af notendaskilmálum og telst samþykktur við nýskráningu.

1. Aðilar

Ábyrgðaraðili: fyrirtækið sem stofnar aðgang að Verkstofu („viðskiptavinur“). Vinnsluaðili: [Rekstraraðili – fyllist út], kt. [Rekstraraðili – fyllist út], [Rekstraraðili – fyllist út], [Rekstraraðili – fyllist út] („Verkstofa“).

2. Efni og tilgangur vinnslu

Verkstofa vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar eingöngu til að veita þjónustuna: tímaskráningu með staðsetningu við stimplun, verkstjórn, launavinnslu og skilagreinar, útgáfu og innheimtu reikninga, móttöku og lestur reikninga og nótna, bókhald, afstemmingu banka og korta, kassa, innflutning gagna og samskipti við viðskiptavini og birgja viðskiptavinar. Vinnslan stendur meðan áskrift varir og eftir það fyrir bókhaldsgögn svo lengi sem bókhaldslög krefjast.

3. Tegundir upplýsinga og skráðir einstaklingar

Skráðir einstaklingarUpplýsingar
Starfsfólk viðskiptavinarNafn, kennitala, netfang, sími, heimilisfang, bankareikningur, tungumál, stimplanir með tíma og staðsetningu, verklýsingar, veikindaskráning, laun og launatengd gjöld, stéttarfélag, lífeyrissjóður, launaseðlar, myndir, spjallskilaboð
Notendur kerfisinsNetfang, hlutverk, auðkennisapp, innskráningarsaga, gagnadagbók
Viðskiptavinir viðskiptavinarNafn, kennitala, netfang, heimilisfang, sími, reikningar, kröfur, greiðslusaga
Birgjar og tengiliðirNafn, kennitala, netfang, reikningar, greiðslur, pantanir
Aðrir í skjölumUpplýsingar sem kunna að vera í reikningum, fylgiskjölum, teikningum og myndum

Viðkvæmar upplýsingar (9. gr. GDPR) eru aðeins unnar að því marki sem viðskiptavinur skráir þær vegna launavinnslu: stéttarfélagsaðild vegna skilagreina og veikindaskráning vegna launa. Viðskiptavinur ber ábyrgð á heimild til þeirrar vinnslu.

4. Skyldur Verkstofu sem vinnsluaðila

5. Undirvinnsluaðilar

Viðskiptavinur veitir almennt samþykki fyrir eftirfarandi undirvinnsluaðilum. Fyrirhugaðar breytingar eru tilkynntar með minnst 30 daga fyrirvara. Viðskiptavinur getur andmælt innan þess frests og, sé ekki fundin lausn, sagt upp án kostnaðar. Verkstofa gerir samninga við undirvinnsluaðila sem leggja á þá sambærilegar skyldur.

Alltaf notaðir

AðiliHlutverkStaðsetning vinnslu
Supabase Inc.Gagnagrunnur, auðkenning, skráageymsla, lyklahólf (Vault), bakendaföll og tímastýrðar keyrslurFrankfurt, Þýskalandi (AWS eu-central-1)
Netlify Inc.Hýsing vefviðmóts (kyrrstæðar síður). Gögn viðskiptavina eru ekki geymd þar; aðgangsskrár (m.a. IP-tala) geta myndastAlþjóðlegt dreifinet
Google LLC – Gemini APISjálfvirkur lestur reikninga og nótna, þýðing verklýsinga, hjálpariGetur verið utan EES
Google LLC – Google Fonts og jsDelivrLetur og opið forritasafn; vafrinn sendir IP-töluAlþjóðlegt
Tilkynningaþjónustur vafra (Apple, Google, Mozilla)Ýtitilkynningar í síma – aðeins ef notandi leyfirAlþjóðlegt
Resend Inc.Kerfispóstur (tilkynningar, endurstilling lykilorðs, beiðni um afrit af nótu) þegar lén Verkstofu er komið; fram að því fer póstur um pósthólf viðskiptavinarGetur verið utan EES

Aðeins ef viðskiptavinur tengir þjónustuna sjálfur

AðiliHlutverkStaðsetning vinnslu
Google LLC – Gmail / Google WorkspaceLestur reikninga úr pósthólfi, drög að bréfum, sending pósts sem notandi velurSamkvæmt samningi viðskiptavinar við Google
Bankar (Landsbankinn hf., Arion banki hf., Íslandsbanki hf.)Bankafærslur, kröfur og greiðslur sem notandi samþykkir og staðfestir með rafrænum skilríkjumÍsland
Peppol-miðlari (t.d. InExchange)Móttaka og sending rafrænna reikningaESB/Ísland
SkatturinnVSK-skil og staðgreiðsla sem notandi samþykkir – viðtakandi samkvæmt lögumÍsland
Dokobit, UABRafrænar undirritanirLitháen (ESB)
Dropbox Inc.SkjalageymslaSamkvæmt samningi viðskiptavinar
dk hugbúnaður ehf., Regla ehf.Innflutningur gagna úr fyrra kerfiÍsland
Færsluhirðir posa (t.d. Teya)Kortagreiðslur í kassaESB/Ísland

Lífeyrissjóðir og stéttarfélög taka við skilagreinum sem viðskiptavinur ákveður að skila og eru viðtakendur samkvæmt lögum en ekki undirvinnsluaðilar.

6. Öryggisráðstafanir

7. Flutningur út fyrir EES

Gagnagrunnur og skrár eru hýst innan ESB. Undirvinnsluaðilar utan EES vinna aðeins á grundvelli verndarráðstafana samkvæmt V. kafla GDPR, svo sem staðlaðra samningsskilmála framkvæmdastjórnar ESB eða gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna.

8. Upplýsingar og úttektir

Verkstofa veitir viðskiptavini upplýsingar sem þarf til að sýna fram á að skyldur samkvæmt samningnum séu uppfylltar. Viðskiptavinur má gera úttekt einu sinni á ári, eða oftar ef lög krefjast, með minnst fjögurra vikna fyrirvara og á eigin kostnað. Óháð úttekt eða vottun getur komið í stað úttektar.

9. Gildistími og lok

Samningurinn gildir meðan Verkstofa vinnur upplýsingar fyrir viðskiptavin. Við lok samnings fær viðskiptavinur gögn sín afhent á stöðluðu sniði innan 14 daga og öðrum gögnum en bókhaldsgögnum er eytt innan 90 daga. Bókhaldsgögn eru varðveitt læst og aðeins til lestrar svo lengi sem bókhaldslög krefjast og síðan eytt.

10. Ábyrgð, lög og varnarþing

Hvor aðili ber ábyrgð á sektum og bótum sem honum er gert að greiða vegna eigin brota. Að öðru leyti fer um ábyrgð samkvæmt notendaskilmálum. Um samninginn gilda íslensk lög og ágreiningur fer fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.